"Kemur lykt af þér þegar þú sefur í nærfötum?"

fleyg setning úr Fóstbræðrum...

 

Ég er farinn að telja niður þá daga sem ég á eftir í FVA, bæði vegna þess að ég hlakka til að fara að vinna og útskrifast, og líka vegna þess að ég er kominn með allveg nóg af þessum skóla í bili..á samt svoo eftir að sakna allra GULL mómentana hjá okkur í raf-tímum...þetta er búið að vera allveg stórkostlegur tími! Yfir í aðra sálma, heilaga þrenningin, eða ég, Aron og Jón Steinar erum að fara á  Extreme - Team á laugardaginn og ef þið vitið ekki hvað það er þá er video af því hér http://www.minnsirkus.is/extreme 

Þetta verður án efa megashow! Talandi um MEGASHOW, dimisionið verður 1.des, fyrsta æfing var í dag og þetta lýtur semi-vel út...á eftir að betrumbæta þetta...svo á eftir verður RÚSTPARTY hjá bippa typpi, Gylfi Bó er búinn að gefa grænt ljós á það, þannig það verður pottaparty, stelpur berandi fram drykki á G-..... get því miður ekki sagt meira um þetta, þar sem ég og Unnar erum algjörlega bundnir þagnarskyldu með það sem gerist þennann dag ! 

Á döfinni er einnig Herra Ísland þar sem 2 ungir og mjög sprækir skagastrákar taka þátt, og teljast þeir sigurstranlegir með eindæmum! Að sjálfsögðu munum við fjölmenna á keppnina og styðja við bakið á okkar mönnum !

Ætlaði að skrifa lengara, en ég hreinlega nenni því ekki og er farinn að sofa !

 

Lag færsluna : Hotpenz - Dansa Ekki  ( Robbi Diskó á heiðurinn af þessu lagi!)

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband